...Jæja held að það sé komin tími á nýja færslu
Ég dreif mig í því að setja inn
myndir af Kárahnjúkaferðinni okkar í
ágúst. Ragga, Tinna og ég ákváðum að drífa okkur til
Egilstaða að hitta okkar ástkæru vinkonu, Örnu Ösp, því að hún átti
afmæli þarna 25.ágúst og var búin að vera staðsett fyrir austan í
nokkrar vikur. Við vissum eiginlega ekkert hvað við ætluðum að gera
þarna þangað til Arna Ö. kæmi að sækja okkur á föstudeginum (var
skálavörður þangað til) þannig að mesti tíminn fór í eitthvað hangs
og já...að hlaupa frá krípí perrum
Endilega skoða þessar myndir...mjög skemmtilegar



Tækifæri til að sjá land sem er að fara undir vatn
Annars ekkert mikið að frétta af mér...bara í skólanum og svoleiðis
leiðindi

Átti reyndar afmæli um daginn, 3. okt, og var farið um
helgina út að borða og svo á djammið...mjög gaman
Svo í gær byrjaði Oktoberfest í Háskólanum og skelltum við okkur
nokkrar úr gamla bekknum úr kvennó í gömlu dimisjón-búningana í
búningakeppni og RÚSTUÐUM henni hehe það var snilld....ekki nein
svaka samkeppni samt

Í kvöld heldur svo Oktoberfest gleðin áfram
og er þá pælingin að fara og fá sér nokkrar bjóra. Svo á
mörgum er reunion hjá gamla kvennó útskriftarárgangnum ´04 og
verður kíkt þangað líka þannig að það er bara fullt að gerast um
helgina og ekki nægur tími til að gera það...þarf líka að læra og
svona
Allaveganna....komin nógu góð færsla núna
See´ya